Verkefni fimmtudags

Í dag er síðasti dagurinn okkar á svæði 5.  Við skulum hafa hann ryksugudag.  Ryksugaðu stofuna vandlega, færðu til húsgögn svo þú komist almennilega að og farðu útí öll horn og undir þyngstu húsgögnin.

Verkefni miðvikudags

Þú skalt kveikja á skemmtilegri tónlist fyrst.  Svo skaltu þurrka af öllum skrautmunum í stofunni, lömpum og myndarömmum.  Þú ert ekki nema örfáar mínútur að þessu ef þú vinnur bara skipulega í hring :)

Verkefni þriðjudags

Þá skulum við skoða sófana og hægindastólana vel.  Stingdu höndinni niður með sessunum og hreinsaðu ruslið sem hefur stungist þarna niður, hvort sem það eru heilu sokkarnir, fjarstýringarnar eða nammibréf.  Þetta tekur enga stund ;)

Verkefni mánudags

Við erum í svæði 5 núna sem er stofan.  Þessa vikuna skulum við taka draslið sem er mest áberandi.  Það eru örugglega hrúgur af drasli hér og þar, dvd-hulstur sem þarf að ganga frá, blöð og bækur og svo framvegis.  Gakktu frá þessu og taktu þér bara 15 mínútur í það.

Húshjálpin-forsíða

 

© 2006 www.sylviaolafsdottir.com

1