Í dag skaltu búa um rúmið þitt. Skipta á rúmunum og búa svo fallega um það, raða púðunum og hafa rúmteppið slétt. Það jafnast ekkert á við það í lok vinnuvikunnar að leggjast til svefns uppí hreint og fínt rúm :)
Við erum búin að þrífa að ofanverðu og það er kominn tími að á skoða gólfin. Sópaðu/ryksugaðu/moppaðu gólfið. Líka bakvið hurðina og bakvið náttborðin. Eyddu 15 mínútum í að þrífa gólfin vel.
Draslhreinsun á miðvikudögum eins og á hinum svæðunum. Líttu yfir náttborðin, kommóðuna og aðra slétta fleti í herberginu þínu. Eru haugar af drasli sem þarf að ganga frá? Það var 22 cm bunki af barnabókum á öðru náttborðinu mínu...án gríns!
Í gær litum við upp í loftið en núna skulum við kíkja út. Sést út um rúðurnar? Þurrkaðu af gluggakistunni, þrífðu rúðuna og þrífðu líka ofan af gardínukappanum/stönginni. Það er ekki vitlaust að þrífa líka af gluggakarminum ofanverður, ekki ólíklegt að þar leynist þykkt ryklag.
© 2006 www.sylviaolafsdottir.com