
Svæði 5 er stofan, fjölskylduherbergið eða húsbóndaherbergið. En taktu bara eitt þeirra fyrir þessa vikuna. Eftir nokkra mánuði verðuru búin að grisja mest allt drasl og óþarfa úr þeim og þá verður auðvelt að þrífa þau öll sömu vikuna :)Byrjendur: Takmarkið er að fjarlægja óþarfa drasl. Eyddu 15 mínútum dag hvern í þessarri viku í að taka eitthvað, bara eitthvað úr stofunni/fjölskylduherberginu. Þetta drasl safnaðist ekki þarna fyrir á einni viku og það verður ekki losað heldur á einni viku, en þú munt taka skref í rétta átt. Vendu þig á að taka lítið svæði fyrir í einu. Ákveddu hvenær dagsins þú ætlar í þetta og stilltu svo klukkuna á 15 mín. Notaðu verkefni dagsins til að gera þetta.
Ef herbergið er alveg laust við óþarfa drasl: (það þýðir bara hlutir sem þér þykir vænt um eða notar) farðu þá áfram í smáatriðin. Það verður frábært að slaka á í þessu herbergi með fjölskyldu og vinum þegar draslið og óreiðan er farin!
© 2006 www.sylviaolafsdottir.com
© 2006 www.sylviaolafsdottir.com